Home > Fréttir > Þjóðhátíðarhald í Stokkhólmi

Þjóðhátíðarhald í Stokkhólmi

June 17th, 2010

Kæru landar !

Íslendingafélagið boðar til þjóðhátíðarsamkundu í Hagaparken í Solna, sunnudaginn 20. júní.
Hittst verður við kopartjöldin kl 14:00 og fundin laut nægilega breið og djúp til að rýma fjöldann. Hugmyndin er að “pikknikka” (hver kemur með eigið), spjalla, hlaupa á eftir börnunum og leyfa svo börnunum að hlaupa á eftir hvert öðru í brennó eða öðrum þjóðlegum leikjum. Athugið að ef útlit er fyrir GRENJANDI rigningu að 17. júní sið þá verður samkundunni frestað og reynt við nýja dagsetningu síðar fyrir sumarhitting félagsins. Sjáumst hress,
HæHó og JibbíJeiii !!

Fréttir

  1. No comments yet.
  1. No trackbacks yet.