Fjölskylduguðsþjónusta 18. apríl
April 13th, 2010
Fjölskylduguðsþjónusta verður haldin í Norsku kirkjunni á Söder (Stigbergsgatan 24) næstkomandi sunnudag, 18. apríl kl. 14:00.
Messan er fjölskylduvæn að venju og verður fyrri hlutinn sniðinn að þörfum barna með brúðuleikriti og söngvænum sálmum. Að því loknu geta þau börn sem vilja farið í hliðarsal og litað smástund (undir eftirliti foreldra sinna úr kirkjubekk örfáum metrum frá) þar til messunni lýkur og sameiginlegt kaffisamsætið hefst.
Um að gera að koma og hitta landa sína í stórborginni, sækja smá spjall og kaffisopa, og gefa börnunum um leið tækifæri til að mynda tengsl við íslenska leikfélaga ;).

