Archive

Archive for February, 2010

Árshátíð 20. mars !

February 28th, 2010

Kæru landar, verið hjartanlega velkomin á árshátíð Íslendingafélagsins í Stokkhólmi!


* Hvenær: laugardaginn 20. mars kl. 18

* Hvar: Fellows, Brunnsgatan 6, Östermalm

* Verð: 450 kr fyrir félaga og námsmenn, 600 kr. fyrir aðra.

* Veislustjóri: Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, leikkona, grínari og uppistandari með meiru

* Fram munu koma: Friðrik Ómar júróvisjón sjarmör og Halla Vilhjálmsdóttir, söng- og leikkona. Eftir borðhald mun hinn frábæri DJ Aronsky sjá um að þeyta skífum fram til kl. 01.30.

* Í boði: Fordrykkur og glæsilegt hlaðborð undir karabískum áhrifum

* Barinn býður upp á allt það helsta og heitasta á markaðnum

Miðafjöldi er takmarkaður, tryggðu þér miða með því að leggja inn á reikning Íslendingafélagsins: Plusgiro 40 39 35-0. Gefðu upp nafn og fjölda miða. Að sjálfsögðu má greiða félagsgjöldin samtímis: 150 kr. eða 250 kr. fyrir fjölskyldu.

Húsið er lokað meðan á borðhaldi stendur, frá 19  – 22, og eftir það kostar miðinn 250 kr.

Eftirtaldir aðilar bjóða uppá glæsilega happdrættisvinninga: Icelandair, 3Sagas, Serrano, Marý hönnuður, 66° norður, Blue lagoon húðvörur, Best á lambið kryddið, Prjónaperlur, Tóta hárgreiðslumeistari og Íris naglasérfræðingur

Hlökkum til að sjá ykkur – Nefndin.

Fréttir

Leshringurinn hittist

February 28th, 2010


Leshringurinn hittist þriðjudaginn 2. mars í heimahúsi til að ræða bókina Boktjuven, og til að skipuleggja frekari lestur. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Ólöfu: olofeiriks@hotmail.com.

Fréttir

Prjónakaffi 6. mars á Café NoCo

February 26th, 2010
Cary Grant lærir að prjóna

Cary Grant lærir að prjóna

Laugardaginn 6. mars er prjónakaffi á hefðbundnum stað; Café NoCo, Odengatan 47 kl. 10.30. Cary Grant verður með sýnikennslu í prjóni (not!).

Allir velkomnir!

Fréttir

Bjórkvöld fimmtudaginn 25. febrúar

February 21st, 2010

Íslendingafélagið stendur fyrir bjórkvöldi 25. febrúar n.k. á Bishops Arms, Vasagatan 7, frá kl. 18.
Skál í boðinu !

Bishops Arms

Bishops Arms

Fréttir

Leikhúsferð – Dauðadansinn

February 21st, 2010

Menningarklúbbur Íslendingafélagsins fer á leikritið Dauðadansinn eftir Strindberg í Stadsteatern, Kulturhuset, 24. apríl kl.18. Hittist áður kl. 17 á Teaterbaren í sama húsi til að spjalla um verkið. Hægt er að nálgast leikritið á prenti á íslensku hjá Ólafi Sveinssyni, hafið samband með því að senda línu á olafursv@hotmail.com. Áhugasamir bóka sjálfir miða á sýninguna á heimasíðunni www.stadsteatern.stockholm.se.

Dödsdansen

Dödsdansen

Fréttir

Breytingar á starfsemi Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð

February 13th, 2010

Tilkynning frá Íslensku kirkjunni í Svíþjóð;

Starf Þjóðkirkjuprests fyrir Íslendinga í Svíþjóð er formlega lagt niður 1. apríl 2010, en prestur starfar áfram í hlutastarfi fram á vor m.a. til að ljúka fermingum. Þetta kemur til vegna sparnaðar Þjóðkirkjunnar eftir gengishrun íslensku krónunnar. Vegna óvissu um framhald starfsins hefur Íslenska kirkjan ekki gefið út „Fréttabréf“ fyrir starfið í vor eins og undanfarin misseri.

Eftir að þetta var ljóst hefur prestur ásamt sóknarnefnd Íslensku kirkjunnar og biskupi Íslands unnið að því að finna nýja fjármögnun fyrir íslenska kirkjustarfið í Svíþjóð.

Undirritaður er kominn í hlutastarf við að taka á móti sjúklingum sem koma til Gautaborgar frá Íslandi vegna líffæraflutninga og annarra aðgerða. Einnig erum við í viðræðum við sænsku kirkjuna um aðstoð við að halda uppi almennu kirkjustarfi meðal Íslendinga. Við erum vongóð um að geta fengið hlutastarf í prestsþjónustu fyrir Íslendinga með þeirra hjálp, en ekkert er ákveðið ennþá. Ef vonir okkar rætast þá verður íslenska kirkjustarfið starfrækt áfram, en með ákveðinni forgangsröðun og prestur töluvert bundnari í Gautaborg en áður.

Nú vitum við ekki hvernig styrkir til starfsins verða á þessu ári og þvi verðum við að draga úr ferðalögum. En barnastarfið hefur forgang og er tvisvar í mánuði í Lundi, Uppsölum og Gautaborg. Það er að mestu unnið af heimafólki en með okkar tilstyrk. Sama gæti átt við um Stokkhólm ef við hefðum leiðtogahóp sem tæki að sér umsjón kirkjuskólans og prestur þyrfti ekki að koma í hvert skipti.

Í Stokkhólmi er fjölskylduguðsþjónusta ráðgerð 18. apríl n.k kl. 14.00 í Norsku kirkjunni. Dagskráin í maí og júní verður auglýst síðar.

Við auglýsum jafnframt eftir fólki sem vill taka þátt í að halda utan um kirkjuskólasamverurnar. Ef við fáum eins og 4 einstaklinga sem vilja vera með og skiptast á að vera með kirkjuskólann getum við haldið uppi mánaðarlegum samverum. Vinsamlegast gefið ykkur fram við prest eða stjórn Íslendingafélagsins ef þið viljið taka þátt í þessu starfi. Þeir sem vilja taka þátt í þessu með okkur myndu síðan hittast 18. apríl næstkomandi til að ræða framhald starfsins.

Með bestu kveðju,

Ágúst Einarsson, 070 286 39 69, kirkjan@telia.com

Fréttir