Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera í Norsku Kirkjunni, Stigbergsgatan 24 á Söder, sunnudaginn 7. febrúar kl 14. Sungið, litað, teiknað og „fíkað“ saman af kaffihlaðborði sem Íslendingafélagið sér um. Ágætt tækifæri fyrir barnafólk að hittast og leyfa krökkunum að leika saman.
Prjónakaffi á Café NoCo, Odengatan 47, laugardaginn 13. febrúar 11-13. Komdu og sýndu okkur hvað þú ert með á prjónunum, heklunálinni eða útsaumsnálinni ! Góð morgunverðartilboð á staðnum, t.d. ristuð beygla með rjómaosti, sultu og kaffibolla á litlar 38 krónur.
Bjórkvöld á Bishops arms, Vasagatan 7, fimmtudaginn 25. febrúar frá kl 18. Skjálftinn tekin fram í tilefni íslensku gestanna sem eiga frátekin borð eins og alvöru fastagestum sæmir.
Nýr leshringur er að fara af stað. Ákveðið hefur verið að lesa „Boktjuven“ (The Book thief, 2005) eftir Markus Zusak sem er marg verðlaunaður rithöfundur í heimalandinu Ástralíu sem og í Bandaríkjunum. Að sjálfsögðu velja lesendur á hvaða tungumáli þeir vilja lesa. Hjá Bokus er hægt að panta bókina á sænsku á 49kr. Hugmyndin er að hittast í lok febrúar og ræða um innihald bókarinnar og taka ákvörðun um framhald leshringsins. Áhugasamir vinsamlega hafið samband við Ólöfu Eiríksdóttur í síma 0736941133 eða olofeiriks@hotmail.com.
Í mars verður svo árshátíð félagsins haldin með pompi og prakt, árshátíðarnefndin er komin af stað með undirbúningin – við stefnum á 20. mars, takið daginn frá !
Fréttir
Landar okkar hjá Íslendingafélaginu í Árósum og nágrenni vilja bjóða Stokkhólms-íslendinga sérstaklega velkomna á alvöru sveitaball, 6. febrúar 2010;
Einstakt tækifæri að upplifa al íslenska matar og sveitaballa stemningu eins og hún gerist best. Laugardaginn 6.feb 2010 verður haldið þorrablót Íslendinga í Danmörku í Árósum og mun Sálin hans Jóns míns spila á ballinu.
Hægt er að kaupa miða inni á
https://www.billetlugen.dk/musik/9333/ og hægt er fá frekari upplýsingar um viðburðinn inni á isfan.dk
Hótel Cabinn í Árósum býður Íslendingum tilboð á gistingu fyrir þessa helgi. Hægt er að velja um eftirfarandi herbergi Economy (enkeltværelse) DKK 400.- Commodore (dobbeltværelse) DKK 575.- Captains Class (stort dobbeltværelse) DKK 675.-
Þeir Íslendingar sem vilja nýta sér þetta tilboð hjá Hótel Cabinn þurfa að gefa upp bókunarnúmerið 599340.
Frá Stokkhólmi er hægt að keyra, fljúga eða taka lest til Álaborgar (Aalborg). Kíkið á möguleikana;
www.metjet.se,
www.sj.se (til Köben og svo áfram)

Sálin klikkar ekki
Fréttir
Kæru landar af fegurra kyninu !
Næstkomandi laugardagskvöld verður haldið ”ladies night” á vegum Íslendingafélagsins. Nú er lag að kynna íslenska hönnun utan landsteinanna…. stefnan er að eiga saman huggulegt kvöld í heimahúsi í Bromma, dáðst að nýrri íslenskri hönnun, máta, handleika muni og etv versla.
Boðið verður upp á léttar fljótandi veigar og góðgæti að heiman. 
Meðal annars verða kynntar vörur frá Hringa (www.hringa.is) og Arca-design, dót frá (www.fafutoys.com), skartgripir frá Erlu Lillendhal og fleira spennandi. Þeir sem hafa áhuga á geta keypt eða pantað á staðnum. Tekið við staðgreiðslu.
Allar hjartanlega velkomnar að koma og eiga kvöldstund með kynsystrum sínum.
Tími: 20:00
Dagur: Laugardagurinn 16. janúar
Staður: Asbjörnsens väg 9, 167 61 Bromma (pendeltåg Nockebybanan)
Nánari upplýsingar í s 076 861 6300 / María
Fréttir
Þar sem síðasta bjórkvöld var stórkostlega vel heppnað var samhljóma álit viðstaddra að endurtaka leikinn og nú á nýjum og spennandi stað. Fimmtudaginn 21. janúar verður hist á Monk´s, Sveavägen 39. Pöbbinn lofar úrvali uppá hvorki meira né minna en 1.400 bjórtegundir svo allir ættu að finna sér einhvað við hæfi.
Íslenskir drykkjufélagar verða á staðnum frá kl 18.
Nánar um Monk´s má finna á http://www.monkscafe.se/sveavagen/
Fréttir
Við ætlum að ögra mínusgráðunum, pakka lopanum oní prjónapokann og hittast á Café NoCo næstkomandi laugardag 9. janúar.
Hefðbundin tímasetning og staðsetning; 10.30-13, Odengatan 47.
Allir spjallþyrstir, kaffiþyrstir og handavinnuþyrstir hjartanlega velkomnir !
Fréttir