Hátíðarmessa og jólaball 20. desember 2009
Hátíðarmessa og jólaball Íslendingafélagsins í Stokkhólmi verður í Norsku kirkjunni á Söder, Stigbergsgatan 24, 20. desember. Húsið opnar kl 10 og messa hefst kl 11. Þetta verður fjölskylduvæn hátíðarmessa því börnin fá að vera í hliðarsal og dunda sér við að teikna og lita meðan fullorðna fólkið nýtur helgistundarinnar.
Í kjölfarið verður svo jólaball með dansi í kringum jólatréð, söng og sveinkaheimsókn frá Íslandi ! Jólaballið hefst kl 11.45. Að því loknu verður hádegis- og kaffihlaðborð í pálínustíl; allir gestir eru hvattir til að taka með sér einhvað girnilegt framlag á hlaðborðið (má koma því til eldhúss í hliðarsal áður en messa hefst). Gjarnan einhvað hádegisverðarkyns en að sjálfsögðu verður ekki fúlsað við rjómatertum, pönnsum eða öðru sætabrauði ! Íslendingafélagið býður uppá drykkjarföng, brauð og létt álegg.

Ætli það sé þessi sveinki sem kemur á jólaballið í Stokkhólmi ?
Foreldrar athugið ! Til að auðvelda það að sveinki gefi hverju barni gjöf sem hentar má koma með lítinn pakka kyrfilega merktum því barni sem á að fá pakkann. Í fatahenginu við innganginn á kirkjunni verður poki sveinka staðsettur þar til ballið hefst og þangað verður hægt að lauma pökkunum svo lítið beri á.

