Archive

Archive for November, 2009

Bjórkvöld fimmtudaginn 19. nóvember

November 15th, 2009

Nú er loksins komin dagsetning á margumbeðið bjórkvöld félagsins !
Fimmtudaginn 19. nóvember verður hist á Bishops Arms, Vasagatan 7 við T-centralen (útgang við Vasagatan-Klarabergsviadukten).  Íslenskir bjórdrykkjufélagar verða á staðnum frá kl 17.30 og fram eftir kvöldi.  Þau ykkar sem ekki hafa enn smakkað hina íslensku Skjálfta og Lava geta nú látið það eftir sér þarna….

Í öðrum íslenskum bjórfréttum má gleðja með því að eftir áramótin verður svo hægt að sérpanta Skjálfta, Móra og Lava í Systembolaginu.  Ágætis aðferð til að styðja íslenskan útflutning.

 Nú vonumst við og hvetjum til góðrar mætingar á þessu fyrsta bjórkvöldi Íslendingafélagsins svo hægt verði að efna til enn fleiri á komandi ári !

 

Fréttir

Kirkjuskóli

November 12th, 2009

Við þökkum fyrir hræðilega góða mætingu, stemningu og stuð á hrekkjavökuballinu síðustu helgi.
Hvetur vissulega okkur í stjórninni til að halda áfram að slá upp hittingum sem henta allri fjölskyldunni. Og ekki þarf nú að bíða lengi eftir næsta skipti ….

Næstkomandi sunnudag, 15. nóvember, verður kirkjuskóli og fjölskyldusamvera í Norsku kirkjunni við Slussen kl 14-16 (Stigbergsgatan 24). Þar verður sungið, lesið og sprellað með krökkunum.
Aldrei að vita nema við laumuæfum jólalögin fyrir jólaballið sem haldið verður 20. desember.

Eftir kirkjuskólann verður fjölskyldusamvera með kaffihlaðborði á kostnaðarverði í umsjón Íslendingafélagsins. Við lofum kræsingum af bestu gerð og huggulegheitum í hæðsta gæðaflokki.

Fréttir