Á föstudaginn kemur, 23. október, munu Sigtryggur Baldursson og kátir kappar hans í slagverkshópnum Parabóla leika í Kulturhuset í Stokkhólmi. Einnig kemur Mammút fram og eru tónleikarnir hluti af norrænni menningarviku.
Ásamt Sigtryggi eru þeir Steingrímur Guðmundsson og Guðmundur Vignir Karlsson, Kippi Kaninus, í hópnum. Leika þeir á svokallaðar endurvarpsparabólur sem eru í raun hlífar fyrir örbylgjudiska.
Fréttir
Nú er hrekkjavökutímabilið í algleymingi hér í Stokkhólmsborg sem og annarsstaðar.
Því er stjórninni bæði ljúft og skylt að greina frá því að nú skulum við endurtaka herlegheitin frá því í fyrra og blása til spúkíballs í safnaðarheimili Danderyd kirkju. Við vonumst að sjálfsögðu til að sjá þar bæði litlar og stórar vampýrur, nornir, varúlfa og önnur furðufyrirbæri einsog afturgengin Elvis, Spúkí Súperman og áfram mætti telja….
Skipulagðir hafa verið ýmsir leikir fyrir börnin og heljarmikið dansiball (jafnvel með diskókúlu!) sem börn á öllum aldri geta tekið þátt í. Veitingar verða í hrekkjavökuanda; legsteinaloka, dauðs manns fingur, kirkjugarðskaka, pöddusnakk, horsúpa, blóðdrykkur og svo framvegis….
Við hvetjum að sjálfsögðu pabba og mömmu til að mæta líka uppáklædd, amk með hatt eða grímu svona uppá stemmninguna !
Semsagt; laugardagurinn 7. nóvember, kl 15-18, Klockargårdsvägen 2, Danderyd (ath ath ekki sama staðsetning og kirkjuskólinn þetta árið heldur sami staður og kirkjuskólinn var á í fyrra)
Til að tryggja sér (og börnum sínum) aðgang að þessu spúkíballi má greiða inn á reikning Íslendingafélagsins Plus Girot 40 39 35-0 og senda svo staðfestingu um greiðsluna ásamt nafni og fjölda barna/fullorðina á postlisti@islendinafelagid.se
Einnig er hægt að senda póst á postlisti@islendinafelagid.se og láta vita fjölda fullorðna og fjölda barna og staðgreiða svo við inngang.
Miðaverð er 65,-SEK á haus (stóran eða lítinn) með tilboði fyrir 4 saman á 200,- SEK.
Síðasti dagur til að fyrirframskrá sig og greiða inn á reikningin er föstudagurinn 30. Október.

Prúðbúnir gestir á leið á ballið í fyrra
Fréttir

Guðsþjónusta, kirkjuskóli og fjölskyldusamvera
Sunnudaginn 11. okt. kl. 14.00
í Norsku kirkjunni, Kronprinsesse Märthas kirke, Stigbergsgatan 24 á Södermalm. Nálægasti T-bani er Slussen.
Brynja Guðmundsdóttir leikur á píanó og Ingibjörg Guðlaugsdóttir á básúnu. Kirkjuskóli fyrir börnin með fræðslu, söngvum og leikjum í umsjón Margrét Þórdórsdóttur og Svövu Gunnarsdóttur. Prestur er Ágúst Einarsson. Kirkjukaffi eftirá í umsjón Íslendingafélagsins. Verið velkomin!
Fréttir