Archive

Archive for September, 2009

Sellófón

September 30th, 2009

Nú gefst okkur Stokkhólms-Íslendingum frábært tækifæri til að sjá hið margumtalaða uppistands-verk ”Sellófon” í sænskri útgáfu á Maxim Teatern. 

Þann 7. október verður frumsýning og okkur býðst að kaupa miðana ”tveir fyrir einn” á fyrstu sýningarnar.  Um nokkrar sýningar er að ræða á þessu góða verði en það verður að bóka fyrir 1. október. 

Miðaverð er 245,- og bókast hjá Maxim Teatern s. 08-643 67 00

Úr kynningu;
”Það er súperkonu-syndrómið sem fær á baukinn í þessum nýja einleik eftir Björk Jakobsdóttur leikkonu.  Verkið kallast Sellófon og vísar titillinn til þess að hin örþreytta tveggja barna útivinnandi móðir, sem leikurinn fjallar um, ákveður að reyna að hressa upp á kynlífið með því að freista eiginmannsins innivafin í sellófon, samkvæmt ráði dömublaðanna.”

”Det handlar om att vara kvinna, ha man, barn, karriär, hem, bil och så ett vulkaniskt sexliv ovanpå det!”

Við sjáumst á Maxim´s !

Fréttir

Starfsemi vetursins

September 24th, 2009

Hér á eftir fara punktar um starfsemi komandi veturs sem ræddir voru á síðasta stjórnarfundi félagsins. Sendu okkur línu ef þú ert með fleiri hugmyndir!

  • Barnastarf og sunnudagaskóli verður áfram í samstarfi við íslensku kirkjuna í Svíþjóð og sr. Ágúst Einarsson. Einu sinni í mánuði, í norsku kirkjunni á Södermalm. Næstu skipti eru 11. október, 15. nóvember og 20. desember.
  • Prjónakaffi– áfram  1x í mánuði á laugardagsmorgnum á Café NoCo, Odengatan 47. Næst 3. oktober, annars auglýst á heimasíðunni.
  • MÍS – menningarfélag Íslendinga í Stokkhólmi fer aftur að hittast í október. Spjallað verður um Íslendingasögurnar, aðrar bókmenntir og leikrit,  bæði íslenskt og sænskt efni. Nánar auglýst síðar og á heimasíðunni.
  • Íslenski kórinn í Stokkhólmi undir stjórn Brynju Guðmundsdóttur leitar að nýjum söngfuglum, æfingar eru á miðvikudögum kl. 18 í finnsku kirkjunni, Gamla stan.
  • Hrekkjarvaka á allraheilagramessu– eða réttara sagt fjölskyldugrímuball, verður haldið í byrjun nóvember í safnaðarheimili Danderyd kirkju, Klockargårdsvägen 2.
  • Bjórkvöld. Er áhugi meðal landans fyrir að hittast t.d. mánaðarlega á pöbb hér í borg? Til að fara yfir stöðuna á kreppunni, nú eða bara nýjasta slúðrið. Sendu okkur línu ef þú veist um heppilegan stað eða hefur tök á að koma þessu a laggirnar.
  • Jólaball í lok hátíðarmessu– 20.desember í norsku kirkjunni á Södermalm. Einróma samþykkt að splæsa í nýjan jólasveinabúning eftir óvænt stripshow sveinka á síðusta jólaballi.
  • Jólaglögg í desember? Kannski það….
  • Árshátið 2010. Það er að mörgu að huga og spennandi undirbúningur bíður árshátíðarnefndar en sú nefnd er enn í mótun.  Ef ÞÚ hefur áhuga á að taka þátt í undirbúningnum og eiga heiður að því að skemmta landanum á því heiðursári 2010 með ógleymanlegu kvöldi skaltu endilega gefa þig fram og senda okkur póst.
  • Sveita/vorferð. Ójá gerum það aftur, mjög gaman og góð mæting síðast.
  • Félagsgjald. Ársgjaldið er 300kr. per fjölskyldu á ári. Íslendingafélagið lifir á fjárhagslegum stuðningi félagsmanna sinna og sjálfboðavinnu stjórnarinnar.  Við hvetjum Íslendinga í borginni til að gerast formlega félagar og styðja þannig starfsemina með því að greiða sín félagsgjöld. Leggið 300 kr. inná Plus Girot 40 39 35-0, og merkið greiðsluna gjarnan með nafni og heimilisfangi.
  • Viltu fá tölvupósta með fréttum frá félaginu eða veistu um einhvern sem situr fréttalaus og leiðist ?Til að skrá sig á póstlista Íslendingafélagsins er best að senda línu hingað: postlisti@islendingafelagid.se.

Kveðja góð,

Stjórnin

Fréttir

Formlegur stofnfundur kórs Íslendinga í Stokkhólmi

September 20th, 2009

Miðvikudaginn 23. september hittast söngglaðir Íslendingar og gamlir kórfélagar til að stofna nýjan kór hér í Stokkhólmi.   Það hefur verið mikill hörgull á söngfuglum og við vonumst til þess að fá nýjar raddir í kórinn.  Við æfum í Finnsku kirkjunni í Gamla stan, miðvikudaga  kl 18:00 – 20:00.   Allir eru innilega velkomnir.

Þeir sem hafa áhuga að spyrjast eitthvað fyrir, geta hringt í Brynju Guðmundsdóttir 070 7904054 eða Einar Sveinbjörnsson 0706 777744

Fréttir

Stjórnarfundur

September 17th, 2009

Viltu koma af stað íslenskum þjóðdansakvöldum? Eða hafa íslensk bjórkvöld á knæpu hér í borg? Finnst þér að það eigi að halda þorrablót eða árshátíð fyrir landann ? Ættum við kannski að halda Íslandsmeistaramót í víkingaspilinu Kubb…? Eða  hafa Hávamálskvöld eða rímnakeppni ? Koma af stað sameiginlegri íþróttaiðkun…? Harðfisk- og hákarlateiti ? Sveitaball? Miðilsfund? Plokkfiskveislu…..?

Við leitum að hressu fólki til að starfa með okkur í stjórn Íslendingafélagsins í Stokkhólmi í vetur. Næsti stjórnarfundur verður haldinn laugardaginn 19.sept kl. 10 á Café NoCo, Odengatan 47, láttu sjá þig – allir velkomnir!

Stjórnin.

Fréttir

Prjónakaffi Íslendingafélagsins

September 9th, 2009
Munið prjónakaffið á Café NoCo, Odengatan 47, laugardaginn 12. sept kl. 10.30 !

Fréttir