Archive

Archive for July, 2009

Kirkjustarf vetrarins

July 15th, 2009

Íslendingafélagið í Stokkhólmi ásamt sóknarpresti, sr Ágústi Einarssyni, hafa nú skipulagt sunnudagaskóla vetrarins ásamt jólaguðsþjónustu.

Starfið verður einu sinni í mánuði í vetur og að þessu sinni höfum við flutt okkur úr Danderydskirkju yfir í Norsku kirkjuna við Slussen sem eru góðar fréttir fyrir þá sem fannst Danderydkirkja vera of langt úr alfaraleið.

Hlökkum til að sjá ykkur í fyrsta kirkjuskóla vetrarins, sunnudaginn 6. september.

Allar nánari upplýsingar og dagsetningar er að finna á dagatalinu hér til hliðar.

Fréttir