Áfram konur

Ert ÞÚ tjejmilsmaterial?
Tejemilen er frábært tækifæri til að hittast, hlaupa eða ganga 10 km og gleðjast svo eftir á og deila upplifuninni. Tjejmilen er líka frábær vetvangur fyrir aðra fjölskyldumeðlimi til að koma saman og hvetja okkur kvensurnar til dáða!!
Hvað eru margar þarna úti sem enn hafa ekki keypt hlaupaskóna eða eru komnar í þá en hafa aldrei reimað þá fasta á sig?? Hvað eru margar sem hafa ALDREI tíma fyrir sjálfa sig??? Hvað eru magara þarna úti sem eru nú þegar komnar í gang með að æfa hlaup eða göngu??
Hvar í ferlinu sem þú ert, getur þú verið með!!! Markmið er allt sem þarf til að ná árangri og að stefna á Tjejemilen er frábært markmið. Nú eru rétt tæpir 70 dagar fram að hlaupi og því nægur tími til undirbúnings. Inn á heimasíðu Tjejmilen er að finna æfingaprógröm sem henta öllum
Hvern langar ekki til New York?? Fáðu 3 vinkonur þínar til að vera með, skáið ykkur saman allar fjórar og þá er eins víst að þið komist til New York!!
Hér er svo hægt að skrá sig í hlaupið
Í stuttu máli, þá skrá allar ofurkonur sig sjálfar í hlaupið og senda svo nafn sitt og ráshóp til : lindagutt75@hotmail.com
Lesið ykkur endilega meira til um Tjejmilen inn á heimasíðu hlaupsins!!!
Kveðja
Linda og Inga yfiríþróttastrympur


