Menningarfélag Íslendinga í Stokkhólmi (MÍS) gefur tilefni til leikhúsferðar á leikritið Páska eftir Ágúst Strindberg í Stadsteatern, á Uppstigningardag 21. maí n.k. Sýningin byrjar klukkan 16.00 en við ætlum að hittast kl. 15 á Teaterbaren í Kulturhuset og þar mun Ólafur Sveinsson fjalla um leikritið. Áhugasamir panta sjálfir miðana sína, mikilvægt er að gera það sem fyrst til að tryggja sér miða. Til að mynda er hægt að fara inn á www.stadsteatern.stockholm.se og panta miða.
Páskar er eitt ástsælasta leikrit Strindbergs. Það var skrifað undir blálok 19. aldar og sett upp aldarmótarárið 1900 í sænska Þjóðleikhúsinu við fremur dræmar undirtektir. Intima teatern, leikhús Strindbergs setti það svo upp 1908 og fékk það þá góðar undirtektir. Fljótlega eftir það fór það sigurför utan Svíþjóðar. Leikritið byggir á Lundartíma skáldsins frá 1898-1899.
Áhugasamir geta fengið ljósrit af leikritinu á íslensku sent í pósti með því að hafa samband við Ólaf Sveinsson með tölvupósti (olafursv@hotmail.com).
f.h. MÍS, Ólafur Sveinsson, s. 076-1391811.
Fréttir
Íslendingafélagið átti frábæran sveitavorferðadag á bænum Undal í gær; blíðviðri, lömb, kusur og góðir hestar sem gerðu sér lítið fyrir að reiða þau rúmlega 30 börn sem mættu með foreldrum sínum um svæðið.
Vel heppnaður dagur sem við vonumst til að geti verið endurtekin á næsta ári enda alveg bráðnauðsynlegt að komast aðeins í sveitina!”
Takk fyrir samveruna

Það jafnast fátt við að gæða sér á heimasmurðu nesti í guðsgrænni náttúrunni
Fréttir
Ekki gleyma sveitaferðinni á sunnudaginn.
Spáin er ótrúlega góð þannig það ætti enginn að láta sig vanta!
Við erum að fara á bóndabæinn Undal i Österåker.
Þú keyrir E18 í átt að Norrtälje.
Beygja til hægri inn á veg nr 276 (Åkersberga) og keyra þann veg ca 20 km (í gegnum sjálft Åkersberga).
Fljótlega eftir Åkersberga-göngin/tunnel komið þið að litlu þéttbýli sem heitir Åsättra. Beygja þar á svo til vinstri við skilti til Bromseby/Lövsättra.
Keyra þann veg beint áfram ca 3 km eða alveg þartil vegurinn enda og þá er bóndabærinn á vinstri hönd.
Bærinn heitir semsagt Undal og eigandinn Sture Nilsson tekur vel á móti okkur.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Ekki gleyma að taka með nesti, drykkjarföng og 20-kalla til að greiða fyrir reiðtúra í hlaðinu.
Fréttir
Það jafnast ekkert á við sveitaferð.
Því ætlar Íslendingafélagið í Stokkhólmi að skella sér í eina góða vorferð í sveitina núna næstkomandi sunnudag.
Þar munum við athuga hvort einhver ný lömb eða kálfar hafi litið dagsins ljós, heilsa upp á íslenska hesta, kíkja aðeins í fjósið og margt margt fleira.
Gott að vita:
Hvar?
U.þ.b 13 km norðan við Åkersberga, nánari leiðarlýsing verður send í pósti við skráningu.
Hvenær?
Sunnudaginn 26. apríl kl 14:00 (á sveitabænum)
Hvað þarf að taka með?
Nesti og nýja skó og svo er gott að taka með sér 20 kr fyrir alla þá sem hafa hugsað sér að taka smá hring á hestbaki.
Hvernig?
Skráning er hafin á póstlista Íslendingafélagsins postlisti@islendingafelagid.se. Munið að gefa upp fjölda sveitagesta.
Athugið að farið verður á einkabílum þannig að fyrir þá sem ekki hafa afnot af einum slíkum er gott að athuga t.d. bensínstöðvarnar eða einhver önnur fyrirtæki sem leigja út bíla og panta tímanlega.
Fréttir

Gísli vegur mann og annan
Laugardaginn 25. apríl kl. 10:00 mun Menningarfélag Íslendinga í Stokkhólmi (MÍS) hittast á CafeNoCo og ræða Gísla sögu Súrssonar.
Er hún dramatísk Íslendingasaga sem gerist nær eingöngu á Vestfjörðum.
Lýsir hún örlögum hetjunar Gísla Súrssonar sem gerður var útlagi eftir að hafa hefnt mágs síns Vésteins með því að vega annan mág sinn Þorgrím í rúmi konu sinnar Þórdísar, systur Gísla. Eftir þetta varð Gísli manna lengst í útlegð á Íslandi á þjóðveldisöld eftir Gretti Ásmundarsyni.
Síðari hluti sögunar lýsir útlegð þessari.
Þó að Gísli hafi verið kappi, skáld og allra mann hagastur var hann eigi gæfumaður. Sagan einkennist af því að persónurnar lenda gjarnan í valþröng milli tveggja slæmra kosta vegna náins skyldleika við átökuaðila sem gerir söguna dramatíska. Á bak við vígin í sögunni liggur heiður ættarinnar, hefndarskylda, afbrýðissemi og átök heiðins og kristins siðar. Vonandi sjá sér sem flestir fært um að koma og ræða þessa mögnuðu sögu. Mun Ólafur Sveinsson leiða umræður.
Síðar stendur til að lesa og fara að sjá leikritið Páskar eftir Ágúst Strindberg.
Fréttir