Archive

Archive for March, 2009

Jazztónleikar í Stokkhólmi

March 14th, 2009

Jazztónleikar á Nalen þann 3 april 2009
Regeringsgatan 74, Stokkhólm                            

Kl: 21:00
Opnar: 20:00
Salur: Stacken
Ver
ð: 100 SEK
 
Björn Thoroddsen (gítar) og Ulf Wakenius (gítar) ásamt Jóni Rafnssyni (bassa)    
 
Björn Thoroddsen og Jón Rafnsson með sænska heimsþekkta gítarleikaranum Ulf Wakenius.
 
Bestu jazzgítarleikarar Íslands og Svíþjóðar í fyrsta skipti saman á sviði.
Við hvetjum fólk eindregið til að kaupa sér miða fyrirfram til þess að missa ekki af þessu einstaka tækifæri.
Hér er hægt að nálgast miða
 
     
         
 
                
                                         
Í samvinnu við sendiráð Íslands í Stokkhólmi email: emb.stockholm@mfa.is  sími: 08 442 8300
Frekari upplýsingar: gudmundur.thorvardarson@nordea.com  sími: 070 726 7704

Fréttir

Menningarklúbbur Íslendingafélagsins í Stokkhólmi!

March 13th, 2009

Stofnfundur menningarfélags íslendinga í Stokkhólmi MÍS verður haldinn laugardaginn 28 mars á Cafe NoCo klukkan 10.30. 
Þar verða ræddar hugmyndirnar að baki stofnun félagsins sem eru í stuttu máli þær að íslendingar hér í Stokkhólmi hittast og gera menningarlega hluti saman eins og að:

  • Lesa og ræða bókmenntir
  • Fara á tónleika
  • Leikritasýningar
  • Halda bjórkvöld
  • Ýmislegt fleira 

Það er augljóst að þetta er eitthvað sem enginn menningarviti með vitum má missa af!

Frá komandi bjórkvöldi menningarklúbbsins

Frá komandi bjórkvöldi menningarklúbbsins

 

Fréttir

Seminarium í Norden í Focus

March 12th, 2009

Inbjudan till seminarium den 19 mars 2009

Nordisk välfärd och IMF-lån – Islands väg ur krisen

Island går igenom sin värsta finansiella och politiska kris någonsin. Den havererade isländska kronan har gjort det enormt mycket dyrare för de islänningar som har lån i utländska valutor och arbetslösheten, som legat lågt de senaste åren, väntas öka till närmare åtta procent i år. I kölvattnet av den ekonomiska krisen har folkets protester lett till en politisk omvälvning och nyval den 25 april.

En kritisk fråga som den rödgröna interimsregeringen på ”sagoön” står inför är hur välfärden kan säkras samtidigt som statskassan sinar. Island har tvingats låna 10 miljarder dollar, cirka 84 miljarder kronor, från Internationella valutafonden, IMF. För att klara sig igenom krisen måste Island uppfylla de krav på en stram penningpolitik som IMF har ställt för att låna ut pengar.

 

Professor Thorvaldur Gylfason talar om den ekonomiska krisens påverkan på det isländska välfärdssamhället. Gylfason är professor i ekonomi på Islands universitet och har tidigare arbetet på bland annat Internationella valutafonden IMF. Árni Thor Sigurdsson, Alltingsledamot (Vänsterpartiet – de gröna) och ordförande i utrikesutskottet redogör för den nuvarande koalitionsregeringens ambitioner att återupprätta den nordiska modellen och ett solidariskt välfärdssamhälle. Hörður Torfason, människorättskämpe, trubadur och ledare för organisationen ”folkets röst” i Reykjavik berättar hur folkrörelsen vill påverka det framtida Island.

 

Lotta Engzell-Larsson, nyhetschef på tidningen Fokus, leder därefter ett panelsamtal med talarna om hur Island och andra länder ska hantera den ekonomiska krisen i förhållande till välfärdssamhället. I samtalet deltar även Annika Lundius, vice vd för Svenskt Näringsliv med ansvar för näringsliv, skatter och samhällsekonomi, och Johan Ehrenberg, chefredaktör för tidningen ETC och författare till Islandsboken Sagan om Bonusgrisen och Bläckfisken.

 

Tid torsdagen den 19 mars, kl. 13.00-15.30, inklusive fikapaus

Plats Klarabiografen, Kulturhuset plan 2, Sergels torg

Anmälan senast den 13 mars till karin@norden.se. Begränsat antal platser.

Arrangör Norden i Fokus – Nordiska ministerrådets informationskontor

 

 

Norden i Fokus
Box 12721
Hantverkargatan 33
SE-112 94 Stockholm

www.nordenifokus.se

Fréttir

Elsku landar

March 9th, 2009
Þessi skemmtilega mynd náðist á dansgólfinu í fyrrakvöld

Þessi skemmtilega mynd náðist á dansgólfinu í fyrrakvöld

Nefndin þakkar þeim sem mættu á árshátíðina kærlega fyrir síðast og vonar að allir hafi skemmt sér sem best.

Einhverjir eru búnir að hafa samband við okkur út af hlutum sem gleymdust, síminn hjá Peter sem sér um Tvålpalaset er 070 873 87 89. Einnig á nefndin eftir að fara þarna niðureftir og sækja sitt dót og gæti þá kíkt í fatahengið ef einhver vill?

Svo tapaðist líka karlmannsjakki, var líklega tekinn í misgripum. Ef einhver kannast við það má hann endilega hafa samband hér á síðunni og við komum viðkomandi í samband við eigandann.

Fréttir

Áríðandi tilkynning!

March 6th, 2009

Til allra þeirra sem eru á leið á árshátíð allra árshátíða á morgun og hafa hugsað sér að fá sér eitthvað á barnum, kaupa happadrættismiða eða borga við innganginn athugið…

Því miður er ekki tekið við greiðslukortum á veislustað, gestir verða því að vera með reiðufé á reiðum höndum.En það er engin ástæða til að örvænta þó allt reiðufé klárist því að sjálfsögðu er meira en nóg af hraðbönkum í nágreninu
Gulu örvarnar merkja hér hraðbanka og fjólubláa partýkúlan er að sjálsfögðu Tvålpalaset

 

Gulu punktarnir eru bankar og sá blái að sjálfsögðu Tvålpalaset

Hér verður á öðrum endanum annað kvöld af gleði

Fréttir

Árshátíð 2009!

March 4th, 2009

Góðir íslendingar

Haldið ykkur fast…
Árshátíðarnefnd Íslendingafélagsins í Stokkhólmi kynnir:

Árshátíð 2009

Laugardaginn 7. mars verður haldin árshátíð allra landsmanna í Stokkhólmi og nágrenni.
Árshátíð með þorraívafi.  
Félagarnir Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrirsson, oft kallaðir Auddi og Sveppi, ætla að stjórna veislunni og sjá um að engum leiðist.

Lang fyndnustu menn Íslands og þó víðar væri leitað

Lang fyndnustu menn Íslands síðan Halli og Laddi

Boðið verður upp á glæsilegt hlaðborð með alls kyns gómsætum mat og þar á meðal mun leynast ósvikinn þjóðlegur þorramatur, sérinnfluttur frá Íslandi.

 

Ykkur er óhætt að fara að pússa dansskóna

Ykkur er óhætt að fara að pússa dansskóna

Meðal atriða:

 

  • Fordrykkur og spjall undir ljúfum tónum
  • Happdrætti  með veglegum vinningum, nánar auglýst síðar
  • Íslenskur brennivínssnaps fyrir alla sem þora
  • Ekta íslenskur fjöldasöngur eins og hann gerist bestur
  • Veisluleikir
  • Hinn sjóðheiti dj Aron Birkir

 

 

 

Staðsetning:
   Tvålpalaset á Mariatorget, Södermalm.
Nánar tiltekið Sankt Paulsgatan 29.
Rétt við rauðu línu Tunnelbanan.

Verð:

  • Óbreyttir: 600 SEK
  • Félagsmenn í íslendingafélaginu:  450 SEK
  • Námsmenn:  450 SEK
  • Eldri borgarar:  450 SEK
Eins og sjá má er hægt að finna verð við allra hæfi og hefur því enginn ástæðu til að láta sig vanta!
Sala aðgöngumiða er hafin í forsölu og hægt er að nálgast miðann með því að greiða inn á
Plus Girot 40 39 35-0
og merkja greiðsluna með nafni, fjölda hátíðargesta og gjarnan tölvupóstfangi.

 

Góðar stundir

Fréttir

Sjá þeir þig?

March 4th, 2009