Nú blása bjartir og öflugir vindar um stjórn íslendingafélagsins og vonandi líka um landsmenn okkar alla hér í Stokkhólmi. Við erum byrjuð að skipuleggja starfsemina fyrir árið 2009 og það verður sannarlega margt í boði sem höfðar vonandi til sem flestra. Hér má sjá uppkast að atburðum frammað sumri;
Febrúar
7. febrúar – Aðalstjórnarfundur Íslendingafélagsins á Café Noco kl. 10 og í kjölfarið á því…
Prjónakaffi á Café Noco kl. 11
28. febrúar – barnastarf og kirkjuskóli í safnaðarheimili Danderyd kirkju kl. 15 (húsið opnar 14.30)
Mars
? mars – Bjórkvöld í tilefni 20 ára afmælis bjórsins á Íslandi. Dagsetning, tími og staður tilkynntur fljótlega.
7. mars – Prjónakaffi á Café Noco kl. 10.30
7. mars – Stórglæsileg árshátíð með þorraívafi, nánar auglýst fljótlega. Athugið að þeir sem hafa borgað félagsgjöldin fyrir árið 2009 fá veglegan afslátt inn á hátíðina.
21. mars – barnastarf og kirkjuskóli í safnaðarheimili Danderyd kirkju kl. 15 (húsið opnar 14.30)
28.mars – Stofnfundur menningarklúbbs (kl. 11 á Café NoCo), sem mun m.a. halda utan um leshring – vín- og bjórsmökkun og hvetja til tónleikasóknar landans sem og vekja áhuga á ýmsum menningaratburðum sem í boði eru á Stokkhómssvæðinu. Starfið verður auglýst nánar síðar. Áhugasamir geta haft samband við Ólaf Sveinsson í síma 08-655 48 30 eða Einar Sveinbjörnsson í síma 08-530 341 73.
Apríl
4. apríl – Prjónakaffi á Café Noco kl. 10.30
18. apríl – barnastarf og kirkjuskóli í safnaðarheimili Dandeyrd kirkju kl. 15 (húsið opnar 14.30)
26. apríl – Vorferð barnanna á bóndabæ í Åkersberga; klappa lömbum, kálfum og kisum og kynnast sveitalífinu.
Maí
2. maí – Prjónakaffi á Café Noco kl. 10.30
16. maí – barnastarf úti í guðsgrænni náttúrunni, hist á leikvelli og sprellað saman, nánar auglýst síðar
Júní
6. júní – Prjónakaffi á Café Noco kl. 10.30
13. júní – Hátíðarhöld í tilefni 17. Júní, dagskrá og staðsetning óákveðin er tilkynnt þegar nær dregur
Fréttir